Sjáðu mynd­bandið: Liðs­fé­lagi Andra skallaði stöngina af reiði eftir ó­trú­leg mis­tök – Vísir

0
61

Sjáðu mynd­bandið: Liðs­fé­lagi Andra skallaði stöngina af reiði eftir ó­trú­leg mis­tök Aron Guðmundsson skrifar 7. maí 2023 12:45

Jasper Cillessen, fyrrum lands­liðs­mark­vörður Hollands í knatt­spyrnu og nú­verandi mark­vörður NEC Nij­megen, gerði sig sekan um afar slæm mis­tök í leik liðsins gegn Heeren­veen í hollensku úr­vals­deildinni í gær.

Mynd­band af mis­tökum Cilles­sen hefur farið eins og eldur um sinu á sam­fé­lags­miðlum og ljóst að þessi reynslu­mikli mark­vörður hefði átt að gera mun betur en raun var vitni.

Gestirnir í Heeren­veen komust yfir í leiknum en tvö mörk frá NEC sáu til þess að liðið var í for­ystu þegar að­eins tíu mínútur eftir lifðu leiks.

S­yd­n­ey van Hoojiodnk jafnaði metin fyrir Heeren­veen með marki á 82. mínútu og að­eins fimm mínútum síðar átti liðs­fé­lagi hans, Antoine Colassin, laust skot að marki.

Cillessen, sem stóð í marki NEC, taldi sig hafa fulla stjórn á að­stæðum og mat það sem svo að boltinn væri á leiðinni fram hjá markinu.

Svo varð ekki raunin, boltinn fór í innan­verða mark­s­töngina og endaði í netinu. Við­brögð Cillessen við því voru skiljan­lega lituð af miklum von­brigðum og skallaði hann mark­s­töngina af reiði.

Mynd­band af at­vikinu má sjá hér fyrir neðan en Ís­lendingurinn Andri Fannar Baldurs­son er liðs­fé­lagi Cillessen hjá NEC. Hann kom ekkert við sögu í leiknum.