Sjö menn voru um borð í bátnum. mbl.is/Kristinn Magnússon
Skipverjinn sem fluttur var á gjörgæslu eftir bátsbrunann í Grímsnesi GK-555 í Njarðvíkurhöfn hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi. Rannsóknin er á lokametrunum.
Þetta staðfestir Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, í samtali við mbl.is.
Hann segir fyrri tilkynningar embættisins vegna málsins standa en ekki sé talið að upptök eldsins hafi borið að með saknæmum hætti.
Aðfaranótt þriðjudagsins 25. apríl kviknaði í bátnum. Útkallið barst Brunavörnum Suðurnesja laust eftir klukkan 02.00 og komu 28 að aðgerðunum. Sjö voru um borð í bátnum, fjórir komust út af sjálfsdáðum, einn brann illa, annar var fluttur á gjörgæslu og sá þriðji, pólskur maður á fimmtugsaldri, lést í brunanum.
Tveir brunar á stuttum tíma Kviknað hefur í tveimur bátum á stuttum tíma á Suðurnesjum, annars vegar í Grímsnesi GK-555 og hins vegar Þrist sem kviknaði í við Sandgerðishöfn þann 29. apríl síðastliðinn.
Jón Pétursson, rannsóknastjóri siglingasviðs hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa, segir rannsóknir málana tveggja ganga ágætlega eftir atvikum. Eldsvoða í skipum sé flókið að rannsaka. Tímalína rannsókna í málum sem þessum sé fjölbreytt, rannsóknirnar taki sinn tíma.
„Þetta er öryggisrannsókn sem við framkvæmum. Þetta hefur ekki réttarfarslega þýðingu. Við erum að reyna að læra af þessu og koma í veg fyrir að samskonar slys endurtaki sig,“ segir Jón að lokum.