Skjálftarnir tengist lík­lega vatni og jarð­hita en ekki kviku­hreyfingum – Vísir

0
64

Skjálftarnir tengist lík­lega vatni og jarð­hita en ekki kviku­hreyfingum Sérfræðingar Veðurstofunnar telja líklegast að skjálftarnir sem urðu í Kötluöskju í morgun tengist jarðhita og vatni, frekar en kvikuhreyfingum.

Kristín Jónsdóttir, fagstjóri náttúruvár, segir í samtali við fréttastofu að virknin nú hafi verið þannig að skjálftarnir hafi verið grunnir. 

„Þegar um er að ræða kvikuhreyfingar þá er virknin allt önnur og fleiri minni skjálftar. Þetta datt eiginlega alveg niður um klukkan ellefu sem bendir þá til að þetta tengist frekar vatni og jarðhita,“ segir Kristín. 

Kröftug jarðskjálftahrina hófst í norðausturhluta öskjunnar í Kötlu klukkan 9:41 í morgun. Þrír skjálftar yfir fjórum að stærð hafa mælst í dag, sá stærsti 4,5 klukkan 9:52. Ekki hefur þó mikið gerst eftir klukkan 11.

Ragnar Axelsson, ljósmyndari fréttastofu, flaug yfir Mýrdalsjökul á góðviðrisdegi fyrir tveimur vikum og á myndunum að neðan má sjá sigdæld í jöklinum.

Langlíklegast að þetta sé búið Kristín segir langlíklegast að það muni ekkert meira gerast. 

„Það var þannig árið 2016 þegar síðast voru skjálftar af þessari stærðargráðu á þessu svæði. Það er enginn sérstakur gosórói núna eða eitthvað sem bendi til að það sé vatn á leiðinni. Það má vera að þessi hrina núna sé til marks um breyttar aðstæður hvað varðar aðgengi að vatni og þrýstingi í jarðskorpunni. Við þurfum bara að halda áfram að fylgjast vel með. Stundum koma hlaup úr þessum kötlum, en það lekur líka úr þeim jafnt og þétt. En það er ákveðin óvissa núna.“

Ragnar Axelsson flaug á dögunum yfir Mýrdalsjökul og Kötlu eins og sjá má í myndskeiðinu að neðan.

Fylgjast áfram vel með Kristín segir að alltaf þegar verða skjálftar sem þessir þá er nauðsynlegt að fylgjast vel með.

„Þetta er þokkalegur hristingur, sá mesti frá árinu 2016. Þessir skjálftar fundust vel víða. Þegar er svona óróleikatímabil þá þarf að vera á tánum og fylgjast vel með. En það er ekkert núna sem bendir til að það sé eitthvað fleira að fara að gerast.“

Tengdar fréttir „Við erum bara róleg ennþá“ Einar Freyr Elínarson, sveitarstjóri Mýrdalshreppur, segir einhverja íbúa í Vík og annars staðar í Mýrdalshreppi hafa fundið fyrir skjálftunum í Kötluöskju í morgun. Hann sé þó ekki einn þeirra. „Við erum bara róleg ennþá og ýmsu vön.“

4. maí 2023 13:39

Skjálftar í Kötlu­öskju sem hafa ekki sést síðan 2016 Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri hjá Veðurstofunni, segir að vegna þeirrar skjálftavirkni sem hafi verið í Kötlu í morgun sé starfsfólk Veðurstofunnar að setja sig í stellingar. Fylgst sé grannt með gangi mála.

4. maí 2023 11:03

Kröftug skjálfta­hrina og flug­lita­kóði við Kötlu settur á gult Kröftug jarðskjálftahrina hófst í Mýrdalsjökli klukkan 9:41 í morgun. Óyfirfarnar niðurstöður jarðvássérfræðinga Veðurstofunnar sýna að þrír skjálftanna voru yfir fjórir að stærð; frá 4,2 upp í 4,5. Um sjö skjálftar hafa orðið á stærðarbilinu þrír til fjórir.

4. maí 2023 10:14

Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Mest lesið
Fleiri fréttir Sjá meira