„Skrúfa og stýri skipsins virðist alveg óskaddað“

0
173

Wilson Skaw strandaði í Húnaflóa. Takist að losa skipið ætti að vera óhætt að koma því til hafnar. Ljósmynd/Harpa Dögg Halldórsdóttir

Skemmdirnar á flutningaskipinu Wilson Skaw, sem strandaði við Ennishöfða á Húnaflóa í gær, eru ekki þess eðlis að þær séu því til fyrirstöðu að koma skipinu til hafnar takist að losa það af strandstað. Ekki er til skoðunar að koma áhöfninni frá borði.

„Skrúfa og stýri skipsins virðist alveg óskaddað samkvæmt köfurunum,“ segir Garðar Jóhannsson, framkvæmdastjóri Nesskipa, sem er þjónustuaðili skipsins á Íslandi.

Við köfun við skipið var staðfest að skemmd á botni skipsins hafi gert það að verkum að jafnvægistankar þess fylltust af sjó. Engin merki eru um olíuleka.

„Það stendur enn yfir mat á aðstæðum og síðan er verið að vinna að einhverskonar björgunaráætlun fyrir skipið. Það er gert í samráði við tryggingafélag skipsins, Landhelgisgæsluna, Umhverfisstofnun og Samgöngustofu. Það bendir ekkert til annars en að það sé hægt að koma skipunu til næstu hafnar til að kafa frekar og kanna betur skemmdir,“ útskýrir hann.

Spurður hvort þjónustuaðilar hér á landi verða fengnir í að gera skipið sjófært á ný svarar Garðar að það sé mjög líklegt. „En köfun við skipið er fyrsta skrefið í að meta framhaldið.“

Hann segir enga umræðu í gangi um að koma áhöfninni frá borði. „Það fer mjög vel um áhöfnina, enda veður með eindæmum gott. […] Staðan er metin þannig að það er engin hætta á ferð gagnvart áhöfninni,“ segir Garðar.