Í dag hefur göngu sína á Vísi golfþátturinn „Slegið í gegn“ en í þáttunum er farið yfir helstu mistök kylfingsins og honum kennt hvernig hægt sé að bæta leik sinn. Þátturinn er einnig aðgengilegur á Stöð 2+.
Kylfingurinn Dagur Snær og PGA-golfkennarinn Snorri Páll sjá um sýnikennsluna og sjá áhorfendum fyrir heimaæfingum.
Í lok þáttanna er fylgst með útvarpsmanninum Agli Ploder og kraftlyftingarkonunni Arnhildi Önnu þar sem þau reyna að bæta sinn leik. Fjölmiðlamaðurinn geðþekki Rikki G sér um þjálfun Egils en Dagur Snær verður Arnhildi innan handar.
Klippa: Slegið í gegn: 1. þáttur