Stelpurnar okkar sóttu góðan sigur til Sviss – DV

0
70

Íslenska kvennalandsliðið vann góðan útisigur á Sviss í vináttulandsleik í dag.

Fyrr í þessum landsleikjaglugga gerði Ísland 1-1 jafntefli við Nýja-Sjáland en í dag var komið að Sviss.

Liðin mættust í Zurich. Stelpurnar okkar byrjuðu betur og kom fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir liðinu í forystu á 18. mínútu. Miðvörðurinn var mættur fremst á völlinn og kláraði gott færi.

Fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir skoraði í dag. Heimakonur tóku hins vegar við sér þegar leið á fyrri hálfleikinn og á 39. mínútu jafnaði Seraina Piubel.

Staðan í hálfleik var jöfn.

Íslenska liðið fann hins vegar sigurmark í seinni hálfleik. Það gerði Sveindís Jane Jónsdóttir.

Sviss tókst ekki að jafna þrátt fyrir nokkuð þunga pressu í lokin. Lokatölur urðu 2-1 fyrir Ísland.