Bandaríski leikstjórinn Steven Spielberg telur að vitsmunaverur séu til utan jarðarinnar og að yfirvöld hafi hylmt yfir mál þar sem fólk telur sig hafa séð geimskip og/eða geimverur. Daily Star skýrir frá þessu. Fram kemur að Spielberg, sem er orðinn 76 ára, hafi sagt að hann telji ekki að við séum ein í alheiminum og að nýleg birting bandarískra yfirvalda á upplýsingum um rúmlega 500 tilfelli, þar sem fólk taldi sig hafa séð fljúgandi furðuhluti, sé „heillandi“.
Spielberg er auðvitað nákunnugur geimverum en hann gerði eina frægustu kvikmynd sögunnar um geimverur, E.T., og myndina Close Encounters of Third Kind.
Hann sagðist pirraður á þeirri leynd sem hvíli yfir málum þar sem fólk sér fljúgandi furðuhluti og einnig pirrar skortur á gagnsæi í þessum málaflokki hann.