Stjörnurnar sem þú gleymdir að voru giftar – DV

0
97

Það getur verið erfitt að eiga langlíft ástarsamband í Hollywood, stöðugt undir smásjá slúðurblaða sem fylgjast grannt með hverri hreyfingu. Sumum stjörnupörum hefur tekist það, eins og Victoriu og David Beckham og Will og Jada Pinkett Smith. Svo eru það stjörnupörin sem þú vissir kannski ekki að giftust og skildu.

Skoðaðu listann hér fyrir neðan.

Bradley Cooper og Jennifer Esposito Þau giftust 2006 og skildu 2007. Emmy Rossum og Justin Siegel Þau giftust febrúar 2008 og skildu í september 2009. Scott Foley og Jennifer Garner Þau giftust október 2000. Jennifer sótti um skilnað í maí 2003. Drew Barrymore og Tom Green Þau giftust í júlí 2001, Tom sótti um skilnað í desember sama ár. Julia Roberts og Lyle Lovett Þau giftust í júní 1993 og skildu í mars 1995. Tom Cruise og Mimi Rogers Áður en Nicole Kidman og Katie Holmes komu til sögunnar giftist Tom Cruise leikkonunni Mimi Rogers árið 1987, þau skildu 1990. Mario Lopez og Ali Landry Þau giftust í apríl 2004 en þau ógildu hjónabandið 2 vikum seinna. Richard Gere og Cindy Crawford Þau voru gift 1991-1995. Madonna og Sean Penn Madonna og Sean Penn giftust 1985 og skildu 1989. Kid Rock og Pamela Anderson Þau giftust í júlí 2006 og skildu í nóvember sama ár. Ryan Reynolds og Scarlett Johansson Þau giftust í september 2008 en tilkynntu í desember 2010 að þau væru að skilja. Nicolas Cage og Lisa Marie Presley Þau giftust í ágúst 2002. Nicolas sótti um skilnað í nóvember sama ár. Kate Winslet og Sam Mendes Þau giftust í maí 2003 og skildu í mars 2010. Þau eiga einn son saman. Jennifer Lopez og Ojani Noa Þau giftust í febrúar 1997 en eftir minna en ár skildu þau. Shannen Doherty og Ashley Hamilton Þau giftust í október 1993 en skildu í apríl 1994. Angelina Jolie og Billy Bob Thornton Þau giftust árið 2000 og skildu 2002. Angelina fékk forræði yfir syni þeirra, Maddox, sem þau voru nýlega búin að ættleiða. Angelina Jolie og Johnny Lee Miller Þau giftust 1996 og skildu 1999. Brooke Shields og Andre Agassi Þau voru gift 1997-1999. Sophia Bush og Chad Michael Muray Þau giftust í apríl 2005 en skildu fimm mánuðum seinna.