Sænsk glæpagengi hafa tekist á af mikill hörku árum saman en þau berjast um yfirráðin á fíkniefnamarkaðinum. Tugir hafa verið skotnir til bana á hverju ári síðustu árin og er Svíþjóð það Evrópuríki þar sem flestir eru myrtir með skotvopni árlega. Nú hefur stríð glæpagengjanna tekið nýja og óhugnanlega stefnu því þau eru farin að beina sjónum sínum að ættingjum meðlima annarra glæpagengja. Í undirheimunum eru venjulega óskrifaðar reglur en í Svíþjóð bendir ýmislegt til að glæpagengin séu farin að horfa fram hjá sumum af þessum reglum. Ein þeirra er að fjölskyldur meðlima óvinaglæpagengja séu látnar í friði.
Nýlega var maður á sextugsaldri skotinn til bana á heimili sínu í Tullinge, sem er sunnan við Stokkhólm. Expressen segir að hugsanlega hafi verið um hefndarmorð að ræða því sonur hans tengist glæpagengi.
Faðirinn var með hreint sakavottort og var í „venjulegri vinnu“ að sögn Aftonbladet. Hann var sem sagt ekki meðlimur glæpagengis.
En lögreglan hafði lýst eftir syni hans, hinum 25 ára Adem Sarihan, kvöldið áður vegna gruns um að hann tengdist morðtilraun í Uppsala í janúar. Þá var um 20 skotum skotið á einbýlishús. Enginn meiddist en inni í húsinu voru margir ættingjar þekkts leiðtoga glæpagengis.
Expressen segir að lögreglan vinni út frá þeirri kenningu að morðið á föður Sarihan hafi verið hefnd fyrir árásina í Uppsala. Auga fyrir auga, ættingi fyrir ættingja.
Lise Tamm, saksóknari og fyrrum yfirmaður þeirrar deildar ríkislögreglunnar sem berst gegn skipulagðri glæpastarfsemi, sagði í samtali við Expressen að þróunin sé áhyggjuefni. „Þegar þú nærð ekki til óvina þinna, þá ræðust á ættingja þeirra. Þetta er hræðilegt. Þetta eru mafíuaðferðir,“ sagði hún.