200 mílur | mbl | 19.4.2023 | 11:33
Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Síldarvinnslunnar, afhendir Guðmundi Höskuldssyni, formanni Rotaryklúbbs Neskaupstaðar, framlag fyrirtækisins í söfnunarsjóðinn. Ljósmynd/Síldarvinnslan: Hákon Ernuson
Á aðalfundi Síldarvinnslunnar í gær tilkynnti Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Síldarvinnslunnar, að fyrirtækið legði átta milljónir króna í snjóflóðasöfnunina í Neskaupstað, að því er segir á vef útgerðarinnar.
Rotaryklúbbur Neskaupstaðar sem stendur fyrir söfnuninni og er markmið hennar að bæta öllum þeim sem urðu fyrir tjóni af völdum snjóflóðsins í Neskaupstað 27. mars síðastliðinn þann skaða sem flóðið olli og tryggingar bæta ekki.
Guðmundur Höskuldsson, formaður Rotaryklúbbsins, sem veitti styrknum móttöku. Söfnunin er sögð ganga vel.