Teiknuðu upp mynd af manni sem grunaður er um sjálfsfróun í bíl – Ætluðu ekki að trúa því hverjum hann líktist – DV

0
122

Lögreglan í Suður-Jórvíkurskíri hefur nú gefið út teikningu af manni sem er sakaður um að stunda sjálfsfróun í bifreið. Netverjar þóttust kannast við myndina.

Kona gerði lögreglu viðvart eftir að hún hafði séð mann stunda sjálfsfróun í bíl. Þetta er í annað sinn sem maðurinn gerir þetta í nánd við konuna sem um ræðir.

Lögregla teiknaði upp mynd eftir lýsingu konunnar og til mikillar furðu líkist hún Jurgen Klopp, knattspyrnustjóra enska stórliðsins Liverpool.

Daily Star birti frétt um málið. Netverjar voru ekki lengi að taka eftir þessu og fóru mikinn, þó ljóst sé að ekki er um Klopp sjálfan að ræða heldur aðeins óheppilega tilviljun.

„Konan var að gangi á King-götu um 20:30 mánudaginn 13. mars þegar maður á litlum rauðum bíl kallaði á hana til að ná athygli hennar. Hann virtist stunda sjálfsfróun áður en hann keyrði í burtu. Konan sagði lögreglumönnum að þetta sé í annað skiptið sem hann geri þetta á nokkrum mánuðum,“ segir talsmaður lögreglunnar í Suður-Jórvíkurskíri.

Þetta er heldur óhepplileg tilviljun fyrir Jurgen Klopp/EPA Enski boltinn á 433 er í boði