Veistu hvaða áhrif það hefur á þig ef þú sefur skemur en sex klukkustundir? Ef ekki, þá skaltu lesa þessa grein. Dr Rebecca Robbins, kennari við læknadeild Harvard háskólans í Bandaríkjunum, sagði í samtali við Telegraph að bara eins klukkustunda breyting á svefntíma fólks dugi til að gera miklar breytingar. „Ein klukkustund dugir til að setja líkamsklukku okkar úr skorðum,“ sagði hún.
Hún sagði að þegar við breytum svefnrytma okkar um eina klukkustund eða meira á milli daga, þá sendum við skilaboð til heilans um að við séum að reyna að skipta yfir í nýtt tímabelti. Það geri svefninn erfiðan næstu nótt.
Hún sagði einnig að toksín, sem heilinn losar um, geti haft alvarlegar afleiðingar. Þau geti haft neikvæð áhrif á heilann, til dæmis valdið Alzheimers eða elliglöpum.
Hún sagði nauðsynlegt að halda sig við sama háttatíma til að tryggja betri nætursvefn. Fullorðnir hafi þörf fyrir rútínu í þessu eins og börn.