3.1 C
Reykjavik
Laugardagur 1 apríl 2023

Þetta gátu afi þinn og amma en þú getur þetta örugglega ekki – Eða hvað? – DV

Related stories

spot_img

Þegar þú hugsar um afa þinn og ömmu þá getur þú örugglega rifjað upp eitthvað sem þau voru góð í að gera. Kannski eitthvað í eldhúsinu, við skrifborðið, í búðinni eða í garðinum. Huffington Post tók saman yfirlit yfir sumt af því sem afi þinn og amma kunnu eflaust upp á tíu en þú hugsar ekki mikið um dags daglega.

Amma þín gat örugglega eldað mat algjörlega frá grunni án þess að blikka. Hún vissi örugglega einnig hvaða hráefni var hægt að bæta í matinn til að ná hinum fullkomna bragði.

Flestir kaupa sér nýja sokka eða buxur ef það kemur gat á þær. En amma þín gat örugglega gert við allt sem þarfnaðist viðgerðar.

Margt ungt fólk á erfitt með að strauja fatnað eða getur það bara alls ekki. En amma þín kunni örugglega að strauja upp á tíu og það allt, allt frá nærbuxum til koddavera.

Afi þinn og amma gátu beðið fólk um að hitta sig án þess að senda sms, tölvupóst eða skilaboð á Facebook. Þau kynntust fólki með því að spjalla við það augliti til auglits.

Afi þinn og amma gátu örugglega skrifað falleg bréf en það er eitthvað sem aðeins sárafáir gera í dag. Tölvupóstur og skilaboð, send á hinum ýmsu samfélagsmiðlum, eru normið í dag. Þá má auðvitað ekki gleyma því að í gamla daga var póstþjónustan góð.

Nýjast

spot_img