Landsbankinn þjónustar eitt stærsta útgerðarfélag heims. mbl.is/Árni Sæberg
Norebo Europe ltd., sölufélag rússnesku útgerðarinnar Norebo, tilkynnti viðskiptavinum sínum í Evrópu í vetur að framvegis ættu greiðslur að berast inn á gjaldeyrisreikninga félagsins í Landsbankanum. Morgunblaðið hefur undir höndum skjöl sem staðfesta þetta, en heimildir Morgunblaðsins herma að Norebo Europe hafi verið í viðskiptum við Landsbankann um árabil.
Norebo Europe er skráð með höfuðstöðvar í Maidenhead í Bretlandi og telst því breskt og verður ekki fyrir áhrifum þvingunaraðgerða líkt og rússnesk félög. Viðskipti með rússneskar sjávarafurðir sæta jafnframt ekki viðskiptaþvingunum og eru viðskiptin lögleg.
Leitað var til Landsbankans og spurt hvort bankinn teldi vera einhver siðferðisleg álitamál við að taka þátt í viðskiptum við sölufélag rússnesku útgerðarinnar. „Við getum ekki tjáð okkur um viðskipti við einstaka viðskiptavini,“ segir meðal annars í svari Landsbankans.
Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.