Innlent
| mbl
| 7.12.2020
| 17:16
| Uppfært
8.12.2020
7:55
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur skilað Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra minnisblaði með tillögum að sóttvarnaráðstöfunum næstu daga.
Þetta staðfesti Iðunn Garðarsdóttir aðstoðarmaður Svandísar við mbl.is.
Ekki er vitað um gildistíma tillagnanna.
Minnisblaðið verður rætt á ríkisstjórnarfundi á morgun. Núverandi takmarkanir gilda til og með miðvikudegi 9. desember.