Bayern Munchen er aðeins einum sigri frá því að vinna tíunda þýska meistaratitilinn í röð eftir 3-0 útisigur á DSC Arminia Bielefeld í dag.
Jacob Laursen setti boltann í eigið net eftir 10 mínútna leik áður en Serge Gnabry tvöfaldaði forskot gestanna með marki á sjöundu mínútu uppbótartíma.
Unglingurinn Jamal Musiala skoraði svo þriðja markið fimm mínútum fyrir leikslok eftir sendingu Robert Lewandowski.
Bayern er með 72 stig á toppi deildarinnar, níu stigum á undan Borussia Dortmund þegar fjórar umferðir eru eftir.