Pontus Jansson reyndist hetja Brentford þegar liðið heimsótti Watford í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í Watford í dag.
Leiknum lauk með 2:1-sigri Brentford en Jansson skoraði sigurmark leiksins þegar fimm mínútur voru liðnar af uppgefnum uppbótartíma.
Christian Nörgaard kom Brentford yfir á 15. mínútu áður en Emmanuel Dennis jafnaði metin fyrir Watford á 55. mínútu.
Leikur Watford og Brentford var sýndur beint á Síminn Sport.