Umdeild þingkona leggur til að Bandaríkjunum verði skipt í tvennt – DV

0
117

Hin umdeilda þingkona Repúblikana, Marjorie Taylor Greene, telur að rétt sé að skipta Bandaríkjunum upp þannig að ríki, þar sem Repúblikanar eru í meirihluta, verði aðskilin frá þeim ríkjum sem Demókratar ráða ríkjum í. Sérfræðingar vara við þessari tillögu hennar. Greene lét þessi ummæli falla í fyrsta sinn í tísti á hinum árlega forsetadegi í Bandaríkjunum en þá minnast Bandaríkjamenn forseta sinna. Greene skrifaði þá að nú væri kominn tími á skilnað ríkja Demókrata og Repúblikana.

„Við höfum þörf fyrir skilnað þjóðarinnar. Við neyðumst til að skilja rauðu og bláu ríkin að og skera alríkisstjórnina niður. Allir, sem ég tala við, tala um þetta. Um þessi sjúklegu og viðbjóðslegu woke-menningarmál, sem er þrýst niður í hálsinn á okkur, til hryllilegrar stefnu Demókrata um að setja Bandaríkin aftast. Við höfum fengið nóg af þessu,“ skrifaði hún.

Marjorie Taylor Greene er ansi umdeild. Skjáskot/YouTube Bæði Demókratar og Repúblikanar gagnrýndu skrif hennar og bentu á að tillagan stríði gegn stjórnarskránni.

Margir sérfræðingar vara við því að ummæli Greene geti ýtt undir ofbeldisverk öfgasinnaðra hægrimanna.