Átta leikir fóru fram í undankeppni EM 2024 í kvöld. Áhugaverðasti leikur kvöldsins var viðureign Íra og Frakka á Írlandi en þeim leik lauk með 1-0 sigri Frakka sem sitja einir á toppi B-riðils. Þá höfðu Serbar betur í grannaslag kvöldsins.
Það var mark þrumuskot Benjamin Pavard, sem fór í slánna og inn, sem tryggði Frökkum sigur gegn Írum í B-riðli í kvöld. Frakkarnir voru sterkari í leik kvöldsins og eru þeir með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðir undankeppninnar og hafa ekki fengið á sig mark.
Í hinum leik riðilsins vann Holland afar sannfærandi sigur á Gíbraltar. Memphis Depay og Nahan Aké (tvö mörk) skoruðu mörk Hollendinga í 3-0 sigri.
Frakkar sitja á toppi B-riðils. Grikkir geta jafnað þá að stigum með sigri í næsta leik sínum E-riðill Það urðu nokkuð óvænt tíðindi í Moldavíu þar sem að heimamönnum tókst að vinna sér inn stig gegn Tékklandi. Tékkarnir mun hærra skrifaðir á styrkleikalista FIFA og geta því nagað sig í handarbökin að hafa ekki nælt í stigin þrjú.
Í hinum leik kvöldsins í E-riðli unnu Pólverjar sigur á Albönum á heimavelli. Það var Karol Swiderski sem skoraði sigurmark heimamanna í leiknum.
Tékkarnir urðu af mikilvægum stigum í kvöld F-riðill Í Austurríki unnu heimamenn sigur 2-1 á Eislandi í kaflaskiptum leik. Snemma leiks fengu Austurríkismenn vítaspyrnu, Michael Gregoritsch steig á vítapunktinn en brást bogalistin því spyrna hans endaði í tréverkinu. Skömmu seinna dró til tíðinda því Rauno Sappinen kom Eistlandi yfir með marki eftir stoðsendingu frá Sergei Zenjov.
Heimamönnum tókst hins vegar að svara fyrir sig með tveimur mörkum fyrir leikslok frá Florian Kainz og Michael Gregoritsch sem kvittaði þar með fyrir vítaspyrnuklúður sitt. Fór svo að Austurríki sigldi heim stigunum þremur sem í boði voru.
Þá vann sænska landsliðið öruggann 5-0 sigur á Azerbaijan á heimavelli. Svíarnir gátu ekki treyst á Zlatan Ibrahimovic í leiknum, hann var frá vegna meiðsla, en það kom ekki að sök. Mörk frá Emil Forsberg, Viktor Gyökeres, Anthony Elanga og Jesper Karlsson, sem og sjálfsmark frá Bahlul Mustafazada sigldu sigrinum heim fyrir Svíþjóð.
G-riðill Ungverjar unnu sannfærandi 3-0 sigur á Búlgörum á heimavelli. Þrjú mörk í fyrri hálfleik frá Bálint Vécsei, Dominik Szobozlai og Marin Adám sigldu sigrinum heim fyrir Ungverja.
Í hinum leik G-riðils var um sannkallaðan nágrannaslag að ræða þegar að Svartfellingar tóku á móti Serbum. Mörk leiksins komu undir lok hans, nánar tiltekið á 78. og 95. mínútu og var þar að verki í bæði skiptin Dusan Vlahovic, framherji Serbíu.
Serbía er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðir undankeppninnar