Erlent

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagðist í daglegu ávarpi sínu í gærkvöldi óttast að Rússar myndu beita efnavopnum en fullyrti ekki að þau hefðu verið notuð. Fyrr í gær var því haldið fram að efnavopnasprengja hefði verið látin falla á Maríupól.
Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í allan dag.
Helstu vendingar:
- Nærri tveir þriðjuhlutar allra barna í Úkraínu hafa flúið heimili sín á þeim sex vikum sem liðnar eru frá því að Rússar réðust inn í landið. Sameinuðu þjóðirnar hafa staðfest dauða 142 barna í átökunum en segja raunverulegan fjölda líklega mun meiri.
- Yfirvöld í Úkraínu segjast hafa fleiri en 6.000 stríðsglæpi til rannsóknar. Fleiri sögur eru að berast af grófu kynferðisofbeldi sem Rússar eru sagðir hafa beitt konur og börn.
- Íbúar í Kharkív og norðurhluta Úkraínu hafa verið varaðir við því sem Selenskí hefur kallað „hundrað þúsund hættulega hluti“ sem innrásarherinn hefur skilið eftir sig; jarðsprengjur og virk skotfæri.
- Rússar eru taldir munu taka Maríupól áður en þeir hefja stórsókn sína í Donetsk, þar sem þeir munu freista þess á næstu vikum að ná yfirráðum og tengja Donbas við hinn þegar innlimaða Krímskaga.
- Vladimir Pútín Rússlandsforseti og Alexander Lúkasjenkó, forseti Hvíta-Rússlands, eru sagðir munu hittast í dag, meðal annars til að ræða ástandið í Úkraínu og refsiaðgerðir Vesturlanda.

Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.