Vetrarfæri er víða um land eftir nóttina, þar sem víða snjóaði. Enn snjóar á höfuðborgarsvæðinu og þar eru hálkublettir mjög víða.
Á Suðvesturlandi er hálka á flestum leiðum en snjóþekja á Hellisheiði. Holur hafa myndast víða í vegum og vegfarendur því beðnir um að sýna aðgát.
Ófært er á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum og snjóþekja eða hálka mjög víða á öðrum leiðum á Vestfjörðum. Ófært er norður í Árneshrepp.
Á Norðurlandi er hálka á Öxnadalsheiði en annars snjóþekja eða hálkublettir nokkuð víða. Þungfært og skafrenningur er á Siglufjarðarvegi.
Á Austurlandi er snjóþekja á Fjarðarheiði og Fagradal. Hálka eða hálkublettir á öðrum leiðum.
Hálka er á flestum leiðum á Suðurlandi og eitthvað um snjóþekju í morgunsárið.