2.8 C
Reykjavik
Laugardagur 25 mars 2023

Vilja endurvekja aðild Íslands að NASCO

Related stories

Klárir í allt!

Þeir Tristan, Stefán, Egill og Andrés á bátsmannsvaktinni eru...

Gamlir taktar….

Um borð þessa veiðiferðina er baadermaður af gamla skólanum....

Mjöööög áhugasamur….

Pétur Axel hefur stundað sjóinn um áraraðir og þekkir...
spot_img

„Ég tel mikilvægt, sem eitt af stofnríkjum NASCO, að við séum virk í umræðunni og gerum okkar besta til að efla enn frekar stöðu villtra laxastofna innan okkar vébanda,“ er haft eftir Svandísi í tilkynningunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra greindi frá þeirri ætlun stjórnvalda að endurvekja aðild Íslands að Laxaverndunarstofnuninni (NASCO) í dag. Svandís greindi frá þessu á ráðstefnunni Salmon Summit sem haldin er í Reykjavík af Verndarsjóði villtra laxastofna (NASF).

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.

Kemur fram að Laxaverndarstofnunin hafi verið stofnsett í Reykjavík árið 1984 í þeim tilgangi að stuðla að verndun, uppbyggingu og skynsamlegri nýtingu laxastofna í Norður Atlantshafi. Íslendingar hafi svo dregið aðild sína að stofnuninni til baka í lok árs 2009 í kjölfar hruns íslenska bankakerfisins.

Þurfum að vera virk í umræðunni  „Ég tel mikilvægt, sem eitt af stofnríkjum NASCO, að við séum virk í umræðunni og gerum okkar besta til að efla enn frekar stöðu villtra laxastofna innan okkar vébanda,“ er haft eftir Svandísi í tilkynningunni.

Núverandi meðlimir NASCO eru Bandaríkin, Bretland, Danmörk (fyrir Færeyjar og Grænland), Evrópusambandið, Kanada, Noregur og Rússland. Þar að auki eiga yfir 20 hagsmunasamtök áheyrnaraðild að NASCO.

Nýjast

spot_img