Þorri útgjalda Sósíalistaflokksins vegna Samstöðvar og Vorstjörnu

0
13

Tekjur Sósíalistaflokks Íslands rúmlega tvöfölduðust milli áranna 2021 og 2022, þegar þær fóru úr rúmum 18 milljónum króna í 37 milljónir króna. Þar munaði mestu um að flokkurinn fékk framlag úr ríkissjóði eftir að hann náði yfir 2,5 prósent þröskuldinn í kosningunum 2021 sem þarf til að fá slíkt framlag, þrátt fyrir að hafa ekki náð inn þingmanni. Framlög frá hinu opinbera fóru úr því að vera 6,1 milljón króna 2021 í 27,8 milljónir króna 2022, en af þeirri upphæð komu 26 milljónir króna úr ríkissjóði. Framlög einstaklinga og félagsgjöld lækkuðu um 2,7 milljónir króna milli ára og voru 8,8 milljónir króna og framlög lögaðila voru einungis 100 þúsund krónur, sem komu allar frá Strandveiðifélagi Íslands. 

Sósíalistaflokkurinn var rekinn í 3,5 milljóna króna hagnaði á árinu 2022. Stærstu útgjaldaliðir flokksins voru rekstur skrifstofu og það sem er kallað „annar kynningar- og baráttukostnaður“, sem næstum þrjár af hverjum fjórum krónum sem …

Skráðu þig inn til að lesa Þú færð tvær fríar áskriftargreinar í mánuði. Þú hefur síðan val um að styrkja óháða blaðamennsku með áskrift á hagstæðu verði, frá aðeins 3.990 krónum á mánuði.

Kjósa

16

Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir