Fékk leigumorðingja til að drepa eiginkonuna – Síðan rann ógnvekjandi sannleikurinn upp fyrir honum – DV

0
93

Í janúar 2021 ákvað Massimo Marenghi, 56 ára Massachussettsbúi, að tími væri kominn til að losna við eiginkonu sína. Hann réði því leigumorðingja til starfa og átti hann að ryðja henni úr vegi. Á fundi, sem hann átti með leigumorðingjanum í janúar 2021, kvartaði hann undan því að eiginkonan hefði fengið sett nálgunarbann á hann.

En það sem hann vissi ekki, var að leigumorðinginn var enginn leigumorðingi heldur útsendari alríkislögreglunnar FBI.

New York Post skýrir frá þessu og segir að Marenghi hafi fundað með lögreglumanninum og beðið um aðstoð hans við að losna við eiginkonuna. Ræddu þeir meðal annars um þóknunina fyrir þetta og átti hún að vera 10.000 dollarar.

Hann lét lögreglumanninn fá ljósmynd af eiginkonunni og útskýrði fyrir honum í smáatriðum hvernig hann gæti komist hjá því að lenda í sjónsviði eftirlitsmyndavéla þegar hann léti til skara skríða.

Á öðrum fundi þeirra greiddi hann lögreglumanninum 1.500 dollara í fyrirframgreiðslu fyrir morðið og bað hann um að ljúka verkinu sem fyrst.

Marenghi var nýlega fundinn sekur um að hafa ætlað að láta ráða eiginkonu sína af dögum. Hann á allt að tíu ára fangelsi yfir höfði sér og sekt upp á 250.000 dollara. Refsing hans verður ákveðin í byrjun júní.