Hjálmari sagt upp störfum: „Tekur lengri tíma en klukkustund að ganga frá eftir 30 ár“

0
18

„Ég er að ganga frá því sem ég get gengið frá. Það tekur lengri tíma en klukkustund að ganga frá eftir 30 ár. Þau standa bara hérna fyrir utan,“ segir Hjálmar Jónsson, sem lét af störfum sem framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands (BÍ) í dag.

Hjálmari var sagt upp fyrirvaralaust, segir hann, en hann hefur starfað með einum eða öðrum hætti fyrir félagið síðan 1989. Hann hefur verið framkvæmdastjóri þess síðan árið 2003.

Þegar Hjálmar tók símann frá Heimildinni var hann að ganga frá. Fyrir utan skrifstofuna hans stóðu formaður, varaformaður og lögfræðingur BÍ, að sögn Hjálmars.

„Ég er bara að reyna að drífa mig,“ sagði Hjálmar.

Í tilkynningu frá Sigríði Dögg Auðunsdóttur, formanns BÍ, segir að stjórn félagsins teldi að ekki hefði verið hægt að vinna áfram verkefni í starfsáætlun héldi Hjálmar áfram störfum. Þegar Heimildin leitaði frekari skýringa hjá Sigríði Dögg vísaði hún einfaldlega í tilkynninguna og vildi ekki tjá sig frekar um málið.

Hjálmar segist sjálfur ekki hafa fengið skýringu á uppsögninni en að ágreiningur hafi verið uppi á milli hans og Sigríðar „um það hvaða kröfur ber að gera til forsvarsmanns Blaðamannafélags Íslands varðandi það að vera fyrirmynd annarra í samfélaginu um opin og sanngjörn og lýðræðisleg samskipti.“

Sigríður DöggEr formaður Blaðamannafélags Íslands.

Mynd: Press.is

Trúnaðarbrestur milli stjórnar og Hjálmars Í tilkynningu BÍ segir að áherslur í starfsemi félagsins hafi breyst á undanförnum misserum. Þetta hafi í för með sér breytingar, þ.á.m. ráðningu nýs framkvæmdastjóra.

Þar segir að upphaflega hafi staðið til að bjóða Hjálmari nýtt starf innan BÍ. Þannig hefði verið hægt að tryggja að þekking og reynsla fráfarandi framkvæmdastjóra nýttist félagsmönnum, stjórn og nýjum framkvæmdastjóra. 

Í því ferli segir þó að trúnaðarbrestur hafi orðið á milli stjórnar og Hjálmars sem stjórnin telur að ekki verði leyst úr. Niðurstaðan varð því að Hjálmar hætti störfum til að „tryggja mætti viðunandi starfsskilyrði á skrifstofu félagsins.“ Í tilkynningunni segir enn fremur að stjórn hafi ekki talið sig getað unnið áfram þau verkefni sem fyrir lágu við óbreyttar aðstæður.

Langþráð sex mánaða frí framundan Auglýst verður eftir nýjum framkvæmdastjóra á næstu dögum. Sigríður Dögg Auðunsdóttir mun gegna starfinu þangað til að ráðið verður í stöðuna.

Hjálmar er ekki sáttur með það hvernig staðið var að uppsögninni.

„Ég hef komið að ýmsum uppsögnum í gegnum tíðina og aðstoðað fólk eftir að því er sagt upp störfum og þetta fólk skorar alveg hátt á þann kvarða að koma ekki vel fram svo ég segi ekki meira.“

Hjálmar fékk sex mánaða uppsagnarfrest frá 1. febrúar næstkomandi. 

„Mér sýnist ég vera að fara í langþráð sex mánaða frí á kostnað blaðamanna í landinu,“ segir Hjálmar.

Blaðamennirnir sem þessa frétt rita eru félagskonur í Blaðamannafélagi Íslands

Kjósa

13

Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir