Íslenski Atlantshafslaxinn í stórfelldri útrýmingarhættu Íslenski Atlantshafslaxinn er í stórfelldri útrýmingarhættu, í fyrsta sinn, meðal annars vegna sjókvíaeldis. Þetta kemur fram á nýjum válista Alþjóðlegu Náttúruverndarsamtakanna sem gefinn var út í vikunni.
Á þessum nýja válista kemur fram að af 160.000 dýrategundum sem þekktar séu um í heiminum, eru 44.000 dýrategundir í útrýmingarhættu.
Breska blaðið The Guardian beinir sjónum sínum sérstaklega að ferskvatnsfiski á þessu nýja lista og segir að fimmtungi allra tegunda sem lifi í fersku vatni sé ógnað vegna loftslagsbreytinga, eða rúmlega 3.000 tegundum af tæplega 15.000 tegundum sem til séu.
Stofninum fækkað um 23 prósent Í skýrslunni kemur fram að menn hafi lengst af haft litlar sem engar áhyggjur af fiskum í fersku vatni, en að það hafi breyst snarlega á síðustu árum þar á með á meðal ástandinu á íslenska Atlantshafshafslaxinum, sem eins og landanum er kunnugt um, er lífæð íslenskra laxveiðiáa. Stofninum hafi fækkað um 23% og að hann hafi til að mynda horfið algerlega úr mörgum ám í Bretlandi.
Þá fækkun megi fyrst og fremst rekja til loftslagsbreytinga, takmörkuðu laxins að uppeldisstöðvum síns vegna stíflna og ekki síst vegna aukins sjókvíaldeldis á borð við það sem Íslendingar þekkja í og við strendur landsins.
Þrengi að Atlantshafslaxinum Þá kemur einnig fram að Kyrrahafslaxinn, sé orðinn frekur til fjörsins í Atlantshafi og þrengi að Atlantshafslaxinum.
Í skýrslunni segir að tegundir ferskvatnsfiska séu um það bil jafnmargar og þær sem synda í sjónum. Það sé í raun stórmerkilegt miðað við að vistkerfi ferskvatns sé einungis um 1% af öllu vistkerfi vatns í heiminum. Þessar fiskitegundir séu því afskaplega mikilvægar vistkerfinu og milljónir manna eigi lífsafkomu sína undir veiðum á ferskvatnsfiski.