Lýsisskip strandaði í Fá­skrúðs­firði – Vísir

0
19

Erlent lýsisflutningaskip strandaði í Fáskrúðsfirði í dag. Verið var að sigla skipinu úr höfn þegar stýri þess bilaði á þriðja tímanum í dag. Skipið losnaði þó af strandstað fyrir eigin vélarafli.

Björgunarsveitin Geisli í Fáskrúðsfirði var kölluð út en samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslu Íslands þurfti björgunarsveitarfólk ekki að hjálpa við strandið þar sem skipið losnaði.

Skipinu, sem heitir Key Bora og er skráð í Gíbraltar, var siglt aftur til hafnar í Fáskrúðsfirði og verður þar að minnsta kosti til morguns eða þegar kafarar geta yfirfarið skipið. Þá þarf flokkunarfélag þess einnig að gefa grænt ljós á að það sé haffært.

Landhelgisgæslan upplýsti Umhverfisstofnun um strandið en engin mengun varð vegna þess.

Björgunarsveitin Geisli var kölluð út þegar skipið strandaði og var björgunarskipinu siglt á staðinn en lýsisflutningaskipið losnaði sjálft af strandstað.Vísir/Vilhelm