Raf­magns­laust á Blöndu­ósi – Vísir

0
8

Rafmagnslaust er á Blönduósi og verið er að leita að bilun. Rafmagnsbilun hefur verið hið minnsta síðan klukkan tíu í kvöld.

Rarik greinir frá þessu í tilkynningu á vefsíðu sinni. Þar eru þeir sem hafa einhverjar upplýsingar sem gætu komið að gagni við bilunarleit beðnir um að hafa samband við Svæðisvakt RARIK á Norðurlandi.

Unnið er að því að einangra bilunina og bundnar eru vonir við það að hægt sé að koma rafmagni aftur á sem fyrst.