Rit­skoðun bjóra: „Þetta er gert fyrir börnin“ – Vísir

0
15

Bjórinnflytjandi þurfti að líma fyrir mynd af fugli á bjórdós svo Vínbúðin samþykkti að selja hana. Hann segir það háð huglægu mati starfsmanna Vínbúðarinnar hvað komist þar í sölu. 

Á grundvelli reglugerðar er ÁTVR heimilt að hafna vöru ef t.d. umbúðir eru taldar höfðar til barna. Á þeim grundvelli var bjórnum Wingman hafnað. Aðrir bjórar hafa þó verið samþykktir inn í verslanir, bjórar sem merktir eru með fígúrum og dýrum.

Þessir bjórar eru til sölu í Vínbúðinni. Gæðingur sem merktur er með kusu, súkkulaði og letrinu NAMM er ekki talinn höfða til barna. Ekki heldur páskapúkinn og bönní kanínan.vísir/elísabet Útlit bjórsins Wingman slapp þó ekki í gegn þegar forsvarsmenn birgjans sóttu um að fá hann í sölu.

„Sökum þessa fugls hér af því hann er talinn höfða til barna,“ segir Ingi Már Kjartansson, forstöðumaður birgjans JG Bjórs.

Niðurstaða sem kom forsvarsmönnum birgjans á óvart í ljósi vöruúrvals ríkisfyrirtækisins.

„Í rauninni fáum engar skýringar aðrar en: Þetta er bara svona, okkur finnst þetta bara.“

Ákvörðunin sé huglægt mat starfsmanna Vínbúðarinnar.

„Okkur er sagt að ef við náum að afmá þennan fugl þá sé þetta í lagi, þannig okkar tillaga var að setja miða yfir sem útskýrir af hverju hann er ekki leyfður… og það er leyft.“

Framleiðandinn, Brewdog er skoskt brugghús og selur bjóra í verslunum um allan heim án vandræða. Bjórinn sé hvergi bannaður í sinni upprunalegu mynd, nema í áfengisverslun íslenska ríkisins.

Ramminn óskýr Hann segist skilja rök að baki reglunni en gagnrýnir að jafnræðis sé ekki gætt.

„Mér finnst ramminn ekkert mjög skýr, hvað sé leyfilegt og hvað ekki. Þarna ákveða þeir þetta og bakka ekkert þó við bendum á að þetta sé ekkert annað en margt sem er í gangi í Vínbúðinni, þannig nei – þetta er svona einkennilegt.“

Bjórinn hægra megin á myndinni er ritskoðaður. Hinn ekki.vísir/elísabet Fyrir börnin Ingi og samstarfsmenn hans þurfi því að handlíma miðana á hverja og eina dós.

„Já, það er bara planið. Við setjum miða á allar dósir og þá þarf enginn að sjá þennan fugl.“

Og þetta er gert vegna barnanna? „Þetta er gert fyrir börnin.“