Arteta neitaði að staðfesta sögusagnirnar – ,,Við þurfum að sjá til“ – DV

0
12

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, neitar að staðfesta það að David Raya verði leikmaður liðsins á næstu leiktíð.

Raya er í láni hjá Arsenal í dag og er aðalmarkvörður liðsins en hann er samningsbundinn Brentford.

Arsenal getur keypt Raya í sumar fyrir ákveðna upphæð en hvort félagið nýti sér það ákvæði er óvitað að sögn Arteta.

,,Þessar samræður þurfa að eiga sér stað eftir tímabilið, við skoðum málið þegar við erum komnir þangað,“ sagði Arteta.

,,Augljóslega erum við ánægð með David og allt sem hann hefur komið með til félagsins.“

,,Þessar ákvarðanir þurfa að vera teknar af öllum og einnig af félaginu, við þurfum að sjá til.“